02. apríl 2008 klukkan 13:34
Já sæl aftur......sorry með það sem á undan er skrifað.. þegar ég les veikindamókshjalið hér á undan þá verð ég næstum því veik aftur, humm eða þannig. Heilsan er orðin ok en bloggkreppan stendur ennþá og takk dætur mínar fyrir stuðninginn. Þegar ég skoða blogg annarra almennt þá finnst mér ekki öll skemmtileg.....en Myndalappa hugmyndin er frekar góð....sem er svona stuttar fréttir og myndir af því sem er að gerast hjá fjölskyldumeðlimum. Það er víst ekki hægt í eins miklu mæli hér að þessari síðu og svo á ég ekki myndasíma heldur.
En ég er svona að pæla í þessu og er ekki hætt en við sjáum til á næstunni......!!!
bestu kveðjur H
Hrefna Harðardóttir
12. mars 2008 klukkan 15:17
já, eins og þið sjáið þá er ég í tilvistarkreppu með bloggið mitt (hef ekkert skrifað í mánuð) ég veit nefnilega ekki hvað ég á að gera með þetta.
1. dagbók um dagsdaglegar athafnir
2. tjáning á málum dagsins, s.s. fréttir og atburðir
3. skítkast á mann og annan
4. gubb á allt það leiðininlega í íslensku þjóðlífi og heimskum íslendingum
5. hrós á vini og vandamenn
6. allskonar tölvufrústrasjónir já, og iðnaðarmannafrústrasjónir.
Humm ég er ekki alveg viss um hvað best er að gera. en alla vegana í dag er ég rúmliggjandi með beinverki, hor og hnerra og öll æðri plön um að gera eitthvað urðu að engu á augabragði.
En Bjössi er í 200 % vinnu og ég sé hann varla, fundir hér og þar og kennsla og alltaf eitthvað. Það var mynd af honum og fleiri orgelkörlum og Arnþrúður Ösp í mogganum í dag.
En sem betur fer bíða mín 5 góðar bækur á náttborðinu þegar ég hef kraft til að halda uppi bók sem er ekki alveg sjálgefið í slappleikanum sem fylgir kvefinu.
Ok sjíríó og vonandi batnar heilsan og ég finni útúr ofangreindri kreppu á næstunni. Bestu kveðjur H.
Hrefna Harðardóttir
12. febrúar 2008 klukkan 16:15
Já hér sit ég og geri styrkumsóknir fyrir Smeltevand sýninguna í júní. Það er nauðsynlegt að fá pening til að geta tekið á móti dönunum og sett upp sýninguna í Ketilhúsinu. Já takið frá fimmtudaginn 19. júní en þá opnar Listasumar og sýningin okkar. Verið velkomin!
Bjössi er búinn að vera eins og jójó á milli norður- og suðurlands í öllum veðrum og vindum. Og ég er umþaðbil að vinna verk fyrir sýningarnar mínar í sumar og haust.
bless í bili....Hrefna
Hrefna Harðardóttir
02. febrúar 2008 klukkan 17:57
Öllu má nú ofgera......það er búið að snjóa í heilan sólarhring og gott betur og ekkert lát virðist vera á þessu. Ég er búin að moka tvisvar í dag og þarf að gera það í þriðja sinn og svo fékk ég snjóruðningstæki til að búa til braut svo ég gæti losað bílinn minn. Inöffisinöff!
Er að fara að passa strákana þeirra Lindu og Guðna á meðan þau fara í afmæli til Láru á Dalvík, vona að þau komist fram og tilbaka......! Ja þorri lætur ekki að sér hæða!
Bestu snjókveðjur Hrefna
Hrefna Harðardóttir
31. janúar 2008 klukkan 14:32
you are steelblue #4682B4 |
Your dominant hues are cyan and blue. You like people and enjoy making friends. You're conservative and like to make sure things make sense before you step into them, especially in relationships. You are curious but respected for your opinions by people who you sometimes wouldn't even suspect.
Your saturation level is medium - You're not the most decisive go-getter, but you can get a job done when it's required of you. You probably don't think the world can change for you and don't want to spend too much effort trying to force it.
Your outlook on life is brighter than most people's. You like the idea of influencing things for the better and find hope in situations where others might give up. You're not exactly a bouncy sunshine but things in your world generally look up.
|
| the spacefem.com html color quiz |
Hrefna Harðardóttir
26. janúar 2008 klukkan 15:47
Við Bjössi tökum það rólega hér heima í H og auðvitað er blessuð blíðan og falleg fjallasýn eins og alltaf. Svo ætla ég að vinna í febrúar á vinnustofunni og undirbúa 3 sýningar á árinu og gera tröppu-flísar og laga til á vinnustofunni minni. Semsagt ágætis plan fram í tímann. Þorrinn er kominn og finnst mér það alltaf góður tími. Þorrablót framundan humm já. Fjölskyldan í gufu og vetrarsúpu og Sóla orðin 25 ára. Þetta er svona stuttrapport um lífið þessa dagana. Ekki sem verst. Bestu kveðjur
Hrefna
Hrefna Harðardóttir
14. janúar 2008 klukkan 17:26
Bunar ad ferdast um megnid ad vestur og nordurhluta Sjalands i dag og buid ad vera vodalega gaman. Forum øi sumarhusid hennar Heidrunar og i gønguferd a strøndinni og ferjuferd til baka fra Sjalands Odden. Bordudum godan mat og tad allt...tvilkur luxus i bak og fyrir. Komum til Islands a morgun. Semsagt godir dagar i dejlige Danmark. Kvedja Hrefna
Hrefna Harðardóttir
12. janúar 2008 klukkan 22:20
Meget smukke farver, meget feminin, meget ro, og man går ut med stærke tanker Flot flot utdstilling. Vi er smelted!! Og fleira i thessum dur var sagt vid okkur og skrifad i gestabokina. Allir voda voda anægdir og utkoman reglulega god, vid megum vera hreyknar af okkur sjalfum. Svo bordudum vid saman a eftir og allt i guddi. Tessi menningarmidstod Portalen er frabært fyrirbrigdi tar var jasstonleikar i hadeginu og buffet fyrir 9 kronur danskar og folk getur verid i 3 klst og farid of fyllt diskinn oftar en einu sinni drukkid øl med. Allir voda ligeglad og næs. svo i hleinu komu tau meira og minna upp i syningarsalinn en burtsed fra tvi ad ta var stanslaus straumur ad folki allann daginn og frabær stemning. semsagt mjøg gott mal.
Førum i sommerhus til Heidrun a morgun og gistum tar eina nott og komum svo aftur til Snekkesten a manudag. Vonast til ad hitta OdduRunu ta en hun vinnur her i 15 minutna fjarlægd.
Sidast er eg fretti var Kolla komin til Italiu og a leid a nyja stadinn. Vona ad allt se i lagi hja henni. Sendi bestu kvedur til hennar. Goda nott i bili Hrefna
Hrefna Harðardóttir
11. janúar 2008 klukkan 23:27
Kæru vinir og vandamenn...nu er eg i Danmorku og syningin SMELTEVAND opnar a laugardaginn 12.januar i Menningarmidstodinni Portalen i Greve. Syningin er numer tvø i utrasinni okkar og eg verd ad segja tad ad hun er ennta betri en i fyrstu atrennu. Salirnir eru fallegir og tetta kemur vel ut. Opnun er kl 2 og stendur til 6 og tad er matur bædi fyrir og eftir med hinum synendunum og teim sem hengdu hana upp. Tad hefur verid hugsad serlega vel um okkur oll.....syningarskra, plakot og kynningar hafa tau sed um og svo er hopur af yfirsetufolki sem fekk fyrirlestur hja okkur um innihald verkanna og tad gekk mjog vel. Vid Siddy forum svo til Louisiana i dag og skodudum tennann frabæra stad......flott syning hja Richard Avadon ljosmyndara.....algerlega frabært! Svo i matarbod hja Anette i kvold.....vid erum svo heppnar ad hafa hitt tessar frabæru konur.
En laugardaginn ta flygur Kolla okkar til starfa sem AuPair stulka til Italiu og allar okkar bestu oskir fylgja henni til nyrra starfa og æfintyra. Bjossi og Sola gafu henni islenskan mat til ad muna hvernig island er og lata ekki italiu glepja sig to margt se gott tar.
En hjartans allir bestu kvedjur i bili vi ses................god nat. Hrefna
Hrefna Harðardóttir
07. janúar 2008 klukkan 19:15
Lífið smátt og smátt að taka á sig venjulega mynd eftir: 6 stórveislur á 9 dögum og við komin með kjötsvima og áramótaskvap eins og Þráinn Bertelson kallar það!
En ofboðslega er búið að vera gaman og matur og vínföng að fínustu sort og íslenskar, franskar , ítalskar delikatessur.
Og svo endaði þetta með Grunnvíkingaballi sem er árlegur viðburður fyrsta laugardag í nýári. Voða gaman og mikið dansað. Takk allir vinir og vandamenn fyrir samveruna og sætmetið!
Bjössi byrjaður að vinna á fullu aftur en ég að ganga frá jólunum og undirbúa Danmerkurferða sem verður reyndar aðeins 5 dagar.
Kolla fékk bílpróf og er að fara til Ítalíu um næstu helgi OMG, vona að allt gangi vel.
En meir um þetta allt við fyrsta.......
ármótakveðja Hrefna
Hrefna Harðardóttir